| |
„Margt frábært fólk hefur starfað hjá okkur lengri eða skemmri tíma. Það fylgja nýir straumar nýju fólki, allir skilja eitthvað eftir og þessi endurnýjun hefur aukið fjölbreytnina hjá okkur.“ — Árni |
Hársnyrtistofa er aldrei betri en fólkið sem vinnur þar. Hárbeitt hefur verið nefnt best geymda leyndarmál Hafnarfjarðar og þar vinna að jafnaði sjö manns við að móta, klippa, lita og greiða hár. Kjarninn í starfseminni er fasta starfsfólkið, eigendurnir Árni og Silla og þau Ingólfur sem hefur unnið á stofunni síðan '94, Sigrún sem hefur verið síðan '97 og Hlynur sem byrjaði 2005. Þar við bætast nemarnir okkar, þeir Dóri og Þobbi.
|
|