ÞETTA ERUM VIÐ Í DAG
 
Silla Arni
Sigurborg Íris Hólmgeirsdottir

Árni Eiríkur Bergsteinsson

Arnold

Ingo

þobbi



„Við Árni erum af annarri kynslóð háriðnaðarfólks. Mamma er hárgeiðslumeistari og það var mamma hans líka. Þetta er í blóðinu.“ — Silla

23 ára og með allt á hreinu
Við opnuðum stofu í Hafnarfirðinum í byrjun árs 1990. Það var ansi skondin byrjun – við héldum að við værum svo fullorðin 23 ára og bara stutt í eftirlaunaaldurinn! Okkur fannst við heppin að hafa keypt stofu í rekstri. En málið var ekki eins einfalt og við héldum því fólkið sem fylgdi með var dálítið eldra en við. Þetta var ekki auðvelt, sérstaklega þegar við reyndum að setja nýjar reglur. Eins og að nota nýju stimpilklukkuna; það fór ekki vel ofan í listafólkið!

Hárbeitt merki fær viðurkenningu
Reynslunni ríkari eftir alls kyns misgáfuleg mistök ákváðum við að breyta til. Við keyptum aðra stofu sem við kölluðum „Hárbeitt“ og merkið okkar var svo hárbeitt að það var tilnefnt til Íslensku auglýsingaverðlaunanna.

Stimpilklukkan undir græna torfu
Stimpilklukkan er löngu komin undir græna torfu og síðan hefur ekkert slíkt komið inn fyrir dyr hjá okkur. Það er alveg á hreinu að skapandi fólk vinnur ekki eftir stimpilklukku. En fólkið okkar er agað og metnaðarfullt og því einskis að sakna.

Þegar við vorum að byrja var ekki mikið líf á kaffistofunni en það hefur heldur betur breyst og nú erum við öll miklir félagar og skellum okkur saman í bíó eða á djamm.

Á Íslandi getur maður allt
Erlendis er meiri sérhæfing en hér heima, fólk er kannski technician eða colourist, o.s.frv og kann þá bara það. Hér á Íslandi er ætlast til að maður geti gert allt – og þá gerum við það!

Víkingar og leikhús
Þó að við getum allt er samt ýmislegt sem við höfum sérhæft okkur í, aðallega ánægjunnar vegna. Árni og Ingó eru t.d. mjög flinkir í að klippa munstur í hár, tribalmunstur og fleira. Þeir eru líka snillingar í að vinna með skegg. Það er list sem ekki allir kunna. Þeir félagarnir taka svo þátt í víkingabransanum sem hefur blómstrað í Hafnarfirði. Upphafið að því var að einn viðskiptavinurinn plataði Árna til að koma á víkingahátíð til að klippa og flétta víkinga. Og áður en þeir vissu af voru þeir Ingólfur orðnir víkingar af lífi og sál og taka þátt í víkingamótum hér heima og erlendis.

Silla er sérhæfð í síðu hári og greiðslum og hefur líka fengist við hárlengingar árum saman. Það er eitt af því sem nýtist henni í Borgarleikhúsinu þar sem þær Sigrún hafa unnið meðfram vinnunni á stofunni í nokkur ár: „Ég hef efni á að vinna í leikhúsinu. Það er dótakassinn minn. Þar fæ ég að prófa allt mögulegt sem ég mundi ekki gera annars.“

Ástríðufólk
Við erum öll mjög dugleg að sækja námskeið erlendis. Silla fer oft til London á námskeið og þau Árni hafa einnig haldið námskeið fyrir fagfólk hér heima. Árni og Ingólfur hafa haldið klippinámskeið á vegum Halldórs Jónssonar og áhuginn á uppgreiðslunámskeiði sem Silla kenndi nýlega var mun meiri en plássið leyfði. Árni situr í sveinsprófsnefnd og Silla sat í stjórn Meistarafélagsins í sex ár. Hún er einnig í starfsgreinaráði og nemaleyfisnefnd.

Árni og Silla eru búin að leggja keppnisskóna á hilluna en stofan ber vitni um góðan árangur í keppnum liðinna ára því þar er að finna tugi verðlaunapeninga og bikara. Meðal sigra þeirra, ýmist saman eða í sitt hvoru lagi, eru 1. sæti í Frístælkeppninni '90, '91, '93 og 2000, Tískulína 1. sæti '91 og ýmist 2. eða 3. sæti árin '92, '95, '96, '97, '98 og '02. Ingólfur lenti í 2. sæti í Frístæl '90 (sem nemi), '97 og '99, og í litakeppni '98. Af nýrri sigrum má nefna að 3. árs neminn Halldór vann 2. verðlaun í tískukeppninni „Hamskipti“ á Nasa 2007. Á stofunni er mikil áhersla á að styðja fólkið í því sem það tekur sér fyrir hendur svo að það haldi ástríðunni fyrir faginu lifandi.

 
© 2007, H Á R B E I T T / Site by Skaggs