Klippti alla með dúkahnífi úr Byko
Ég er mikið fyrir tilraunir og nýjungar. Snemma á 90's tímabilinu, þegar ég var ungur og vitlaus, klippti ég alla með dúkahnífi úr Byko. Ég sá þetta í bresku blaði þar sem einn gaurinn var með aðferðir við að klippa með dúkahníf og kveikjara. Ég lét hnífinn samt duga. Prófa kveikjarann kannski á elliheimilinu – kyndi upp í liðinu með því að svíða nokkur hár!
Hef prófað allt á sjálfum mér
Áður fyrr prófaði ég allt á sjálfum mér og hef prófað allt frá skalla yfir í hanakamba. Ég var alltaf klipptur og litaður á hálfsmánaðarfresti þangað til í fyrra að ég ákvað að verða hárprúðasti karlmaður á Íslandi – sem tengist hobbýinu mínu, víkingabransanum.
Að lita augnhárin getur bjargað deginum
Þegar ég byrjaði fannst fólki maður allt of ungur og það var oft vaðið yfir mann en ég hætti nú samt aldrei að reyna. Ég hef auðvitað mildast með árunum. Þetta eru 99% mínir föstu kúnnar en maður reynir stundum að breyta þeim. Ég hef ekki áhuga á að festast sem þessi fótafúni sköllótti rakari sem endurtekur stöðugt það sama. Ég reyni stundum að fá fólk til að breyta til, sérstaklega ef einhver er búinn að vera með sömu klippinguna í 20 ár. Þá er kominn tími fyrir tilbreytingu, kannski bara að lita augnhárin! Það getur verið mjög flott breyting og alveg bjargað deginum!
Það trúði því enginn að við gætum unnið saman
Ég vinn með konunni minni allan sólarhringin og það hefur virkað ótrúlega vel. Fólki fannst þetta alveg klikkað í byrjun. Það trúði því enginn að við gætum unnið saman en hér erum við meira en 20 árum seinna – geri aðrir betur! Mér finnst í rauninni leiðinlegt að vera í vinnunni ef konan mín er ekki á staðnum. Það er bara góð tilfinning að hafa sannað sig að þessu leyti. Þó að við séum samhent í þessu er mikil vinna hér heima að byggja svona starfsemi upp frá grunni – ætli maður væri ekki bara kominn á einkaþotu ef maður væri að þessu í útlandinu?
Innblástur
Mér finnst voðalega gaman að blanda saman gömlu og nýju. Ég kann náttúrlega gömlu taktana og blanda þeim við nýja. Ég er móttækilegur fyrir öllu og er ekkert að fussa yfir skringilegum hlutum í hárinu á fólki. Ég hef ódrepandi áhuga á nýjum stíl og aðferðum. Einhvern tíma álpaðist ég inn einhvers staðar í London og fór að spyrja menn út í hárið á þeim og var næstum laminn í spað!
|