| |
 |
 |
Sigurborg Íris Hólmgeirsdottir
|
Árni Eiríkur Bergsteinsson
|
 |
 |
Arnold
|
Ingo
|
 |
þobbi
|
|
Þórbergur heiti ég, er kallaður Þobbi og er "neminn" hjá þeim á Hárbeitt. Hóf námið þar í desember 2006, og hef verið að vinna þar með skólanum. Stefni að því að taka sveinspróf janúar 2010.
Þótt að maður sé titlaður neminn þá þýðir það ekki ég sé barað vaska upp og taka til, þau koma fram við mann eins og alla aðra starfsmenn og allir hjálpast að. Maður lærir mjög vel og margt hjá þeim Sillu og Árna, enda hafa þau langa og mjög góða reynslu. Það þýðir ekkert að vera óöruggur með sig hjá þeim hjónum því þau vilja kenna manni og láta mann á gólfið og fylgjast með manni vinna og gera hlutina rétt, en þau þurfa ekkert að fylgjast með manni lengur, kallinn kann þetta alveg, enda að læra hjá þeim bestu;)
Ég hef tekið þátt í hárgreiðlsukeppnum og einnig sýningum tengdar skólanum og vinnu, og sótt mjög mörg námskeið sambandi við nýjustu hárlínurnar, klippi- og litartækni. Einnig vinn ég í Borgarleikhúsinu með Sillu að greiða fyrir sýningar sem er mjög góð reynsla fyrir mig, læra meira og vinna við það sem það sem maður hefur áhuga á, "hár". Að læra/vinna á Hárbeitt er frábært, góður starfsandi, gott fólk sem veit líka hvað það er að gera.
|
|