VÖRURNAR
   

Pönkið umbylti hárefnunum
Það hefur orðið ótrúleg bylting í hárefnum síðan við byrjuðum í faginu. Á áttunda áratugnum voru bara til hársprey og svo gel. Á pönktímanum var mikil tilraunastarfsemi því fyrir sumar greiðslurnar dugði ekkert af efnunum á markaðnum. Þá var notuð eggjahvíta, kók og ýmislegt fleira óhefðbundið.

Allt nýtt er spennandi - og það nýjasta er GHD
Vöruþróun í faginu er hröð og við fylgjumst mjög vel með. Við notum það sem okkur líkar best hverju sinni. Sebastian-vörurnar hafa þó fylgt okkur meira og minna í 17 eða 18 ár. Þær eru einfaldlega mjög góðar. Svo notum við allt mögulegt samhliða, við vorum t.d. fyrst til að kynna Tigi-vörurnar á Íslenskum markaði. Síðan skiptum við þeim út fyrir ofsalega skemmtilega vörulínu, ghd. Það var enginn með það merki svo við ákváðum að flytja það inn sjálf. Við erum listamenn – allt nýtt er spennandi og við höfum prófað flestar vörur á markaðnum. Svo getur verið að maður fái einhverja nýja dellu á morgun – maður er ekki giftur neinu einu svona efni.

 
© 2007, H Á R B E I T T / Site by Skaggs