SILLA, SIGURBORG ÍRIS HÓLMGEIRSDÓTTIR
 
Silla Arni
Sigurborg Íris Hólmgeirsdottir Árni Eiríkur Bergsteinsson

Ég er besti klippari í heimi
„Á góðum degi finnst mér að ég sé besti klippari í heimi, en ég geri ráð fyrir að öllum hinum finnst þeir líka vera það. Það er besta mál!

Stofan er griðastaður
Það er gott að koma í vinnuna og stofan er okkar griðastaður og félagarnir bakka mann upp sama hvort það er sól eða rigning. Það er svo mikilvægt í þessu fagi að hafa jákvæða samkeppni og traust bakland. Saman vitum við að við erum bestu klipparar í heimi!“

Innblástur
„Við erum „stuff junkies“, alltaf að læra nýja hluti og prófa nýja hluti, þó ekki strax á viðskiptavinunum. Fyrst prófum við á hvert öðru. Við fylgjumst vel með vöruþróun í faginu og erum óhrædd við að skipta um skoðun. Við erum alltaf að finna nýjar aðferðir sem gefa betri, fallegri og skjótari árangur og notum aðeins þær vörur sem okkur líkar best hverju sinni. Þróunin er svo hröð og alltaf eitthvað nýtt sem er spennandi að prófa. Við skiptum jafnvel um vörulínur ef okkur finnst ástæða til.

Cartoon-klippingar
Þær eru það nýjasta núna. En maður steypir ekki alla í sama form. Það skemmtilega við þessar klippingar er að það er hægt að fara svo ólíkar og persónulegar leiðir með þær eftir karakter viðskiptavinarins. Teiknimyndir eru skemmtilega afgerandi, með sterka skugga og ákveðin form; sumum henta tilteknar línur eða litir en öðrum hentar að taka þetta alla leið.“

 
© 2007, H Á R B E I T T / Site by Skaggs